Tónlistarnámskeið fyrir 3-5 ára
45 mínútna tímar þar sem áhersla er lögð á skemmtilega samveru gegnum söng, hljóðfæraleik og hreyfingu.
* Í boði að syngja í hljóðnema í hverjum tíma
* Ýmsir skemmtilegir tónlistartengdir leikir
* Hljóðfæraleikur á trommur, tréspil ofl. hljóðfæri sem henta 3-5 ára
* Prófum t.d. gítar, píanó ofl. hljóðfæri.
Kennt er á sunnudögum kl. 10.15-11 á efri hæð Smiðjuloftsins. Sex skipti frá 13. janúar – 24. febrúar (frí 27. janúar).
Þátttakendur fá frítt í Fjölskyldutíma Smiðjuloftsins sem hefjast kl. 11, meðan á námskeiðinu stendur.
Verð: 15.000 krónur (5 þús. greiðast við skráningu).
20 % systkina afsláttur
Kennari er Valgerður Jónsdóttir, tónmenntakennari og söngkona.
Skráning og upplýsingar hér á Facebook, smidjuloftid@smidjuloftid.is eða í síma: 623-9293