Jóla-fjölskyldutímar 9. og 16. desember

Fréttir

Jóla-fjölskyldutímar 9. og 16. desember

Það verður heldur betur notaleg jólastemmning hjá okkur á Smiðjuloftinu 2. og 3. sunnudag í aðventu frá 11-14. Þetta verða einu fjölskyldutímarnir í desember. Við byrjum svo aftur 13. janúar eftir jólafrí. 2. desember er lokað hjá okkur vegna Íslandsmeistarmóts.

Hér er smá upptalning á því sem verður í boði:

  • Klifur, leiktæki, spil, púsl, leikföng (eins og vanalega)
  • Piparkökuskreytingar
  • Músastigagerð
  • Kaffi og kakó
  • Jólamyndir til að lita
  • Jólasöngstundir á hálfa tímanum
  • Opinn hljóðnemi fyrir þau sem vilja syngja jólalögVerð: 800 kr. Klifurskór: 200 kr. Kaffi/kakó: 200 kr Piparkökur 5 stk. á 200 m. glassúr til skreytinga.14 ára og yngri séu í fylgd með fullorðnum. 14-17 ára þurfa undirskrift foreldris til að koma án fylgdar.

    Hlökkum til að sjá ykkur.

Smiðjuloftið